Sunday, January 6, 2008

Jólafráhvörf

Hlýlegur og gefandi tími, þessi jól. Hátíð barnanna innra með okkur og ytra. Samvera og kærleikur, messur og hátíðleiki, matur og gjafir, hvíld og nánd, lestur og leikur. Nú er sá tíminn að klárast, þrettándinn og síðustu sprengjurnar. Út með jólin. Nei, annars. Kannske held ég bara jólunum inni og tek hversdagsleikann inn í þau, fremur en að skilja á milli. Samvera með stærri hópi, sunnudagsmessurnar, hollur matur og óáþreifanlegar kærleiksgjafir, hæfileg hvíld, nánd, lestur og leikur. Held jólunum í vitundinni. Og held síðan upp á að vefsíðan komst á koppinn fyrir hátíðarnar. Ótrúlega gleðilegur áfangi. Og nú er það verkefni orðið mun ánægjulegra viðureignar, svona þegar grunnurinn hefur verið lagður. Þá berst leikurinn út á hafsjó möguleikanna í framsetningu og tengingum. Tilkomi næsta önn.

Wednesday, December 12, 2007

Vefsíðuvafningar

Nokkrir klukkutímarnir farnir í málið, en á endanum fæðist kvikindið.

www.hi.is/~erlabo

Tilraunatengill á heimasíðuna.

Tuesday, December 4, 2007

Frétt um rannsókn

Það er heppileg tímasetning á fjölmiðlaumræðunni um skólamál, nú þegar klára skal þann hluta vinnunnar í ferilmöppunni og enn vantar einhverja pistla. Í gær var frétt um PISA rannsókn á getu 15 ára barna í náttúruvísindum og lenti Ísland í 27. sæti. Af Norðurlöndunum vorum við næstneðst, þar sem Noregur var í 33. sæti. Þetta þykir útheimta gagngera skoðun á menntunarmálum í grunnskólum landsins. Ekki treysti ég mér langt út í þessa umræðu. Til þess þarf ég frekari upplýsingar, en það eru eflaust margir þættir sem spila inn í stöðuna, bæði í skólamálunum og í gerð rannsóknarinnar sjálfrar. Þetta virðist hins vegar benda til að full ástæða sé til að staldra við og skoða stöðuna. Skoða breytingar undanfarinna ára og hvað hamli meiri árangri en raun ber vitni. Best að fara á stúfana.

Thursday, November 29, 2007

Fyrr en dagur fagur rann

Það líður að lokum síðustu kennsluviku í félagsvísindadeild og búið að klappa kennurum lof í lófa í lok kennslustunda af því tilefni. En um leið og kennslu lýkur hefst vinna. Kapphlaupið við klukkuna til að klára þá vinnu sem skila verður í lok annarinnar. Á þessu stigi er það ferilmappan og upplýsingatæknin, en þetta tvennt getur farið saman. Spurning um að ná utan um það mál.

Annars fjallaði kennslufræðin í gær um námsstíl. Það kom fram sem flestir telja sig eflaust vita að sá háttur sem hafður er á við að læra er afstæður við hvern einstakling fyrir sig. Á meðan einn getur einungis lært við skæra birtu líður öðrum óþægilega nema að hafa dempaða lýsingu í námsrýminu. Einn hlustar við tónlist og annar í algjörri þögn og þar fram eftir götunum. Það sem leitar mest á hugann eftir að allt rykið er sest sem þyrlaðist upp við að allir nemendur lýstu sínum námsstíl varðar þá staðreynd að flestir telji sig eflaust vita að námsstíll sé einstaklingsbundinn. Ef svo er, hvernig má þá vera að skólastofur skuli enn vera með því sniði sem raun ber vitni. Mér dettur í hug í þessu sambandi stofa 103 í Lögbergi. Þvílíkt rými, maður lifandi. Bláhvít flúrlýsingin úr lofti, glansandi borðaraðirnar þvert yfir stofuna, gamlar ljósmyndir af persónum sem koma væntanlega við sögu skólans en fæstir bera kennsl á og ekkert sem flokkast getur undir að koma til móts við hið persónulega í nemandanum. Vélrænt umhverfi til fulls. Bert. Tómt. Kalt. Stelur auk þess hljóðinu einhvers staðar í tóminu á leið sinni milli nemenda og kennara. Ætli þetta virki vel í lögfræðinámi?

Tuesday, November 6, 2007

Á vettvangi

Vettvangurinn í morgun var Fjölbrautaskólinn í Ármúla. Dálítið er hann ólíkur Menntaskólanum við Hamrahlíð. Ég fylgdist með einni kennslustund í heimspeki og með samanburðinum á kennsluháttum tveggja kom dálítil hugljómun.
Ég hef ekki enn áttað mig á mörkum þess sem koma skal fram á þessari bloggsíðu og læt því þessar upplýsingar nægja að sinni.

Sunday, November 4, 2007

Heimasíðan

Töluverður tími liðinn síðan síðast. Töluverður miðað við verkefni kennsluréttindanáms sem bíða. Í þetta sinn ríð ég á vaðið með tengil á heimasíðu mína. Á þessu stigi er raunar vafasamt að kalla hana heimasíðu, en löglegt þó. Ég hefi nefnilega stofnað hana með heiti, sett inn á hana einn tengil og skreytt með bakgrunni. Þar með upptalið. En eins og segir í hinni góðu bók: Lát engan líta smáum augum á æsku þína (1. Tím. 4:12). Síðan er sem sagt hér. Þartil næst.

Sunday, October 7, 2007

StofnSkrif

Hallelúja!
Ætlunarverki lokið. Bloggsíðan mín er orðin til. Hamingjudagar, sólskin og sleikjó.
Svo höldum við áfram veginn,
Höfundur